Um lögmannsstofuna
Lögmannsstofan var stofnuð árið 2005 af Árna Ármanni Árnasyni hrl. en Árni hefur áralanga reynslu af lögfræðistörfum á sviði banka- og fyrirtækjaréttar.
Lögmannsstofan hefur aðsetur við Túngötu 5 í Reykjavík.
Á stofunni starfa fjórir lögmenn sem eru með réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi, auk þess sem einn hefur einnig réttindi til að flytja mál fyrir Hæstarétti Íslands.
Lögmannsstofa Árna Ármanns Árnasonar veitir alhliða lögfræðiþjónustu en viðskiptavinir stofunnar eru allt frá einstaklingum til stórfyrirtækja, fjármálastofnana, sveitarfélaga og stofnana ríkisins.
Verkefni stofunnar eru margvísleg en
sérsvið hennar er á sviði fyrirtækjaréttar. Þar ber helst að nefna málefni er varða: banka- og verðbréfamarkaðsrétt, félagarétt, samkeppnisrétt o.fl. Lögmannsstofan tekur einnig að sér skjalagerð og ráðgjöf vegna kaupa, sölu og endurskipulagningar fyrirtækja, sem og vegna annarra atriða er tengjast fyrirtækjarekstri.
Lögmenn stofunnar hafa mikla reynslu af veðrétti, vátryggingarétti, verktaka- og útboðsrétti, skuldaskilarétti, stjórnsýslurétti, sveitarstjórnarétti, sem og skipulags- og byggingarmálum.
Hafa samband