Lögmannsstofa Árna Ármanns Árnasonar


Lögmannsstofa Árna Ármanns Árnasonar veitir alhliða lögfræðiþjónustu til viðskiptavina sinna, hvort sem er til einstaklinga, fyrirtækja, opinberra stofnana eða sveitarfélaga. 

Á stofunni starfa fjórir lögmenn. Verkefni stofunnar eru margvísleg en sérsvið hennar er á sviði fyrirtækjaréttar. Þar ber helst að nefna málefni er varða: banka- og verðbréfamarkaðsrétt, félagarétt, samkeppnisrétt o.fl. Lögmannsstofan tekur einnig að sér skjalagerð og ráðgjöf vegna kaupa, sölu og endurskipulagningar fyrirtækja, sem og vegna annarra atriða er tengjast fyrirtækjarekstri.

Lögmenn stofunnar hafa mikla reynslu af veðrétti, vátryggingarétti, verktaka- og útboðsrétti, skuldaskilarétti, stjórnsýslurétti, sveitarstjórnarétti, sem og skipulags- og byggingarmálum.

Lögmannsstofan leggur mikið upp úr trúnaði við viðskiptavini sína. Lögmenn stofunnar eru bundnir trúnaði um allt sem þeir verða áskynja í störfum sínum og fara með allar upplýsingar um viðskiptavini sem trúnaðarmál.